Vetrarundirbúningur:
Þegar fellihýsi eða hjólhýsi eru undirbúin fyrir veturinn er nauðsynlegt að hafa eftirfarandi í huga. Athugið þó vel að listinn er alls ekki tæmandi.
Rafgeymir.
- Rafgeymi skal ávallt fjarlægja, best er að geyma hann á hlýjum stað og hlaða nokkrum sinnum yfir veturinn. Þetta á við hvort sem húsið er geymt á köldum eða upphituðum stað.
Vatn.
- Vatnstankur skal ávallt tæmdur og látinn standa opinn.
- Heitavatnstankur skal ávallt tæmdur. Í Rockwood fellihýsunum (frá og með 2008 árgerðinni) er það gert með því að opna fyrir krana sem er í gólfi við hlið miðstöðvar. Í hjólhýsum með ALDE er þetta gert á sama hátt. Í hjólhýsum með TRUMA 220v vatnshitara þarf að frátengja hitarann (er oftast undir rúmi) og blása hann vel út eða fjarlægja.
- Neysluvatnskerfi skal ávallt tæmt, hvort sem um er að ræða fellihýsi eða hjólhýsi. Ekki er nóg að tæma eingöngu neysluvatnstank, heldur þarf einnig að tæma leiðslur og vatnsdælu. Í Dethleffs, Polar og Eximo hjólhýsum er best að fjarlægja vatnsdælu sem staðsett er í vatnstanki og geyma á hlýjum stað. Best er að blása kerfið út og skilja við alla krana opna. Staðsetning vatnsdælu í Rockwood er á gólfi undir eldhúsinnréttingu.
- Í hjólhýsum með ALDE hitakerfi, sem er lokað vatnshitakerfi, er góð venja að athuga hvort nægur vökvi sé á kerfinu. Ef það vantar á kerfið ber að bæta á það en eingöngu má nota ALDE FROSTLÖG.
Fellihýsi og fortjöld.
- Gæta skal sérstaklega að því hvort fellihýsið sé ekki örugglega þurrt áður en það er sett í geymslu, þannig myndast ekki mygla í dúknum. Þetta á ekki síður við um fortjöld.
